Ál prófílar
Ál – Létt, varanlegt og áreiðanlegt efni fyrir garðskála!
Einungis hágæða efni eru notuð til að færa þér fyrsta flokks vöru. Við bjóðum þér að koma í sýningarsal okkar að Kletthálsi 15 til að sjá hvernig skálarnir virka og líta út.
Álið
Ál prófílarnir eru sérstaklega þróaðir fyrir IPC garðskálana.
![]()
Framleiðandinn (SAPA) hefur ISO 9002 vottun. IPC notast við þrjár gerði prófíla: 38×50, 60×63 og 60×80 mm. Hönnun garðskálanna gerir það kleift að hægt er að hafa þá allt að 9 metra á breidd. Hákarksbreidd hverrar einingar getur verið allt að 2,3 metrar en það takmarkast af breidd flutningsgáma.
Lögun skálanna er höfð þannig að auðvelt sé að renna þeim fram og aftur. Hönnun þeirra byggir á því að garðskálarnir séu stílhreinir og útsýni gott til allra átta þegar viðhafst er inni í skálanum.
Fjölbreyttar gerðir garðskála sem IPC býður upp á eru smíðaðar með hreyfanlegum einingum. Hverja einingu má færa óháð hinum í hvaða átt sem er en einnig má færa þetta sem eina heild. Allir hlutir sem skálinn er gerður úr eru ryðfríir.












